user

Kia Ísland - Askja

Motor Vehicle Manufacturing
img No Team Available

Overview

Bílaumboðið Askja er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz og Kia á Íslandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og þjónustu á Mercedes-Benz og Kia fólks- og atvinnubílum. Askja leggur mikla áherslu á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini en einkunarorð fyrirtækisins eru metnaður, fagmennska, heiðarleiki og gleði. Markmið Öskju er að bjóða framúrskarandi bifreiðar og veita þjónustu sem uppfyllir kröfur viðskiptavina um öryggi, umhverfishæfni og áreiðanleika. Bílaverkstæði Öskju á Krókhálsi eru vel mönnuð hæfu starfsfólki sem hefur hlotið vandaða þjálfum hjá Mercedes-Benz og Kia. Að auki er verkstæðin búin bestu mögulegu verkfærum og tækjum sem völ er á fyrir nútímaverkstæði. Varahlutadeild Öskju leitast við að aðstoða eigendur Mercedes-Benz og Kia bifreiða með vandamál sem upp kunna að koma. Nær allir slithlutir í nýlegar Mercedes-Benz og Kia bifreiðar eru til á lager ásamt mjög miklu úrvali af öðrum varahlutum. Ef varahlutur er ekki til á lager er hann pantaður með hraði og er kominn innan 48 klst. Söludeild fólksbíla er staðsett á Krókhálsi 11 þar sem boðið er upp fjölbreytt úrval fólksbíla og jeppa. Söludeild Mercedes-Benz atvinnubíla er á Fosshálsi 1. Askja notaðir bílar eru staðsettir á Kletthálsi 2 þar sem við bjóðum fjölbreytt úrval fólks- og atvinnubíla hvort sem þeir eru í eigu Öskju eða eru í umboðssölu. Verkstæði fólks- og atvinnubíla eru staðsett á Krókhálsi 11.